|
Jón Júlíus
Žorsteinsson:
"Ég
hef myndir mínar fallegar, einfaldar og skýrar svo
hvert barn skilji, þá skilja þær líka
allir aðrir."
Úr formála Árna Böðvarssonar:
"Hljóðstöðumyndir
žær sem hér birtast eru hinar fyrstu sem birtar
eru á žennan hátt af íslenskum hljóðum.
Þær eiga að vera gagnlegar við hvers konar
kennslu í íslenskum framburði eða hljóðmyndun.
žær eru žví ætlaðar lestrarkennurum,
framsagnarkennurum, söngkennurum, talmeinafræðingum
og raunar öllum žeim sem žurfa að leiðbeina
um rétta og eðlilega hljóðmyndun í
íslensku".
Aðrir notkunarmöguleikar:
Hljóðstöðumyndirnar
henta einnig vel í kennslu fyrir Ný-Íslendinga
(innflytjendur) lesblinda og börn á leikskólaaldri.
Með Hljóðstöðumyndunum fylgir bókin
"LESTRARKENNSLA" hljóðlestraraðferð.
Höfundur lýsir žar persónulegri aðferð
sinni við lestrarkennsluna. Þar sem talkennsla og söngur
sérhljóðanna var í hans höndum skemmtileg,
fjölbreytt og árangursrík aðferð við
lestrar- og framburðarkennsluna.
Lesefni:
Notkun
myndanna og val á lesefni með fleim getur verið
með ýmsu móti. "Byrjandinn" 30 lesblöð
eftir Jón Júl. Þorsteinsson hafa verið mikið
notuð. Annað námsefni sem reynst hefur vel að
nota með Hljóðstöðumyndunum og samið
var með žær í huga, eru bækurnar "Stafir
og Hljóð" 1-A, 1-B og 1-C eftir Helgu Sigurjónsdóttur
kennara.
Upplýsingar:
Lestrarkennslan
sem verið hefur á þremur kasettum, er nú
á þremur geisladiskum.
Verð alls kennsluefnisins er kr. 7.000.
Sú breyting hefur orðið á stjórn minningarsjóðsins að Sigurður G. Flosason, áður yfirkennari í Oddeyrarskóla og verið hefur gjaldkeri sjóðsins frá stofnun hans 1982 er nú hættur og Ágúst Frímann Jakobsson
ašstošarskólastjóri í Brekkuskóla er tekinn við. Einnig er Gunnlaugur Kristinsson einn af endurskoðendum sjóðsins hættur og Snorri Óskarsson kennari kemur í hans stað.
Aðalstjórn
er því skipuð sem hér segir: Erla Kristjánsdóttir,
Guðmundur Víðir Gunnlaugsson, Ágúst
Frímann Jakobsson, Vilberg Alexandersson og Atli Guðlaugsson.
Netfang minningarsjóðsins og útgáfunnar er:erlakris@mi.is
Heimilisfang er Bakkastaðir 5a, 112 Reykjavík
Sími: 553-6848
|